Engar meiri næturgjafir
Nú er komið að því! Við erum byrjuð að venja Daníel á að drekka ekki á nóttunni sem þýðir að innan skamms munum við fá að sofa samfleytt alla nóttina í fyrsta sinn í meira en 4 mánuði! Litli kallinn er farinn að borða góðan skammt af graut á hverju kvöldi þannig að hann á alveg að endast nóttina án þess að fá meira. Fyrir þrem nóttum prófuðum við þetta fyrst, þá vaknaði hann þrisvar og þá fékk hann bara vatn í pela og fór aftur að sofa. Í fyrrinótt vaknaði hann tvisvar eða þrisvar og fékk ekki neitt, bara snuð. Og svo núna í nótt vaknaði hann í fyrsta skipti kl. 5, fékk þá smá vatn og fór aftur að sofa. Ég hef það á tilfinningunni að nóttin í nótt verði fyrirheitna nóttin. Þegar ég tala um að sofa alla nóttina þá meina ég að sjálfsögðu bara til kl. 7, en það er feykinóg!
Svo verður Daníel vigtaður á morgun og þá kemur í ljós hvort allur þessi grautur hefur hjálpað honum að þyngjast. Í síðustu vigtun var hann 6,36 kg, ég giska á að núna sé hann orðinn 6,9 kg. Kemur í ljós á morgun. Fyndið hvað tíminn líður hratt og litli strákurinn okkar er farinn að borða mat og hættur að drekka á nóttunni… Átti ekki von á að hann yrði svona stór svona fljótt!
p.s.
Daníel fékk lítið tuskudýr gefið frá langömmu sinni um helgina, litla kind. Hún hefur verið skírð Kindin Einar.
nóvember 3rd, 2005 at 3:16 am
Er Daniel grautarkall buin ad thyngjast e-d??
Attu ekki fleiri myndir?? Uti i snjonum???
Eru ekki alveg komnir skaflar nuna. Buid ad snjoaa og snjoaa
Eg get ekki kvartad undan kulda. Thad er alveg ogedlsega heitt i dag
Eg keypti mer sukkuladi jola-dagatal og eg er nu alveg viss um ad thad verdur bradnad thegar eg verd buin i tima 