Próflestur = mikið að heiman

Jæjja þá er prófatíð að ganga í garð. Ég fer sem betur fer ekki nema í 2 próf en það er nú alveg nóg þar sem ég get ekki lært nema í 4 tíma á dag og svo um helgar. Þetta gerir það að verkum að ég sé Daníel voðalega lítið á kvöldin og ennþá minna um helgar og ég sakna hans alveg svaaaaaaaakalega mikið.

Ég held að Daníel sé heldur ekki ánægður með þetta. Hann lýsti skoðunn sinni á þessum lestri best í gær með því að ÆLA YFIR GLÓSURNAR MÍNAR! Vonda mamma! Greinilegt að ég verð að bæta honum þetta upp í næsta mánuði ;) .

4 Responses to “Próflestur = mikið að heiman”

  1. Steina Says:

    oh

    já mér líður einmitt líka svo illa. Ég fór í morgunn frá snúllunni minni auk þess sem hún er í pössun frá 8-17 alla virka daga. mér líður ótrúlega illa yfir þessu.
    Ég fer í 3 próf og á eftir um 50-60% af námsefninu. :(

  2. Nafnlaust Says:

    Haha, ældi á glósurnar. Þvílíkt og annað eins. Greyin mín, ég öfunda ykkur ekki af þessum prófum. Gangi ykkur vel. :)

  3. Vala Says:

    Gleymdi að setja nafnið mitt áðan ;)

  4. Steina Says:

    Karen ég er komin með nýja heimasíðu. Mátt alveg kíkja þú varst svo dugleg að skoða gömlu síðuna.
    knús