Undur og stórmerki!!!
Undur og stórmerki eru að gerast! Daníel er farinn að sofa heilar nætur! Við bíðum með öndina í hálsinum og vonum að þetta sé til frambúðar. Á miðvikudaginn erum við að fara með Daníel til barnaskurðlæknis og láta meta naflaslitið. Vonandi verður hægt að gera eitthvað í því sem fyrst, en hvort sem verður þá verðum við rólegri eftir að hafa talað við sérfræðing. Nýjar myndir frá því í mars eru komnar á myndasíðuna.
apríl 3rd, 2006 at 10:40 pm
Takk fyrir að vera svona dugleg að setja inn myndir. Ég skemmti mér konuglega við að sjá hvað Daníel er að prakkarast. Þið megið alveg senda hann til mín í hraðflugi

apríl 4th, 2006 at 9:14 am
Gaman að fá myndirnar. Hver á þennan sumarbústað? Eitt tip fyrir digital camerur: þegar maður er að taka myndir inni á móti glugga eða tekur myndir inni og fer svo út, þá verða myndirnar oft bláleitar (út af muninum á gervi og dagsljósi). Ef þið haldið hvítu A-4 blaði fyrir myndavélina í smá stund, þá aðlagar myndavélin sig að sterka dagsljósinu (kallast “hvít-balance”) og það verður hvítt (en ekki blátt). Knús. alda.
apríl 4th, 2006 at 4:25 pm
Landsbankinn á þennan bústað
og takk fyrir tipsið með myndavélina, ég mun örugglega aldrei nýta mér það 
apríl 5th, 2006 at 10:07 am
Gaman að sjá svona mikið af myndum af krúttinu