Kojak
Daníel er sköllóttur! Við ákváðum að raka hárlufsurnar af honum í þeirri von að hárið muni spretta jafnt og þétt. Litli gaurinn minnir óneitanlega á Kojak en nú þegar, nokkrum dögum eftir klippinguna er hárið byrjað að spretta. Hann verður orðinn fínn á afmælinu sínu. Þessi aðgerð okkar hefur vakið misjöfn viðbrögð og hefur m.a. amma Daníels efast stórlega um dómgreind okkar ![]()
maí 13th, 2006 at 7:59 pm
Líst vel á ykkur
maí 14th, 2006 at 5:27 am
Sammála ömmunni!
maí 16th, 2006 at 11:41 am
he he þetta er bara svalt.
maí 18th, 2006 at 8:46 am
Mér líst vel á Söndru og Steinu en Friðrik….hefur þú aldrei verið snoðaður?
maí 18th, 2006 at 9:22 am
samkvæmt hárgreiðslufólki er það alger vitleysa að hár þykkni við að vera klippt… klipping og snoð er bara til snyrtingar… Löngu búin að spurja að öllu slíku, svo ef ykkur vantar einhvern tíma að vita “allt það sem þið alltaf vilduð spurja hárgreiðslumanninn en þorðuð aldrei” þá bara meila á mig. x
maí 21st, 2006 at 2:51 pm
Já ég er nú sammála, ömmunni, Friðrik og Öldu. En nóg um það. Hvernig ganga flutningarnir, eitthvað ætlaði ég nú að vera duglegri í þeim málunum, ætlaði að hjálpa að bera kassa og svoleiðis. Við verðum nú að fara að hittast, ég er alveg að fara í sumarfrí.