AMMÆLI!!!
Jæja þá er litli strákurinn okkar orðinn 1árs! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt :-o. Við ætlum að halda uppá daginn með því að kíkja aðeins niður á tjörn eftir vinnu og gefa Bra Bra brauð og svo er það bara ammælisveisla heima í kvöld fyrir familíuna (Alda, þín tertusneið verður send með Fedex). Reyndar verður haldin sameiginleg ammælisveisla fyrir Magneu (lang-ömmu Daníels) og Daníel þar sem þau fæddust sama dag nema með 83 ára millibili
Daníel er allur orðinn hressari og farinn að hamast mikið, eða öllu heldur ennþá meira. Hann á eftir að una sér vel í boðinu í kvöld enda ELSKAR hann að fá svona mikla athygli, þá fer hann alveg á kostum

júní 13th, 2006 at 2:37 pm
Til hamingju með Daníel Mána!!! Hipp hipp húrrey!!! Knús til ykkar allra. Annars kannski geymiði bara kökusneiðina fyrir mig í frystinum þar til ég kem heim, held hún bráðni bara í póstkassanum ef hún er send hingað
Svitinn lekur hérna af mér á lyklaborðið við lærdóminn… Fremur erfitt að hugsa skýrt við próflestur í 30 stiga hita. Cyberspace faðmlag og knús. Alda.
júní 16th, 2006 at 12:59 pm
Til hamingju með afmæli stóri strákur. Ótrúlegt hvað gerist á einu ári, ég man eftir pabba þínum að dást að því hve Halldóra Ísold var “stór” á eins árs afmælinu hennar í fyrra.
knús