Meira um nýja rúmið

Jæja, nú er Daníel búinn að sofa í nýja rúminu í nokkrar nætur. Fyrstu næturnar gekk það nokkuð vel, hann fór beint að sofa þegar við lögðum hann, en kom reyndar uppí til okkar svona seinni part nætur. Síðan núna síðustu 3 daga er hann búinn að fatta betur að hann getur farið úr rúminu hvenær sem hann vill. Maður lætur hann inn, síðan næsta klukkutímann er maður að hlaupa á eftir honum þegar hann kemur útúr herberginu og setja hann aftur uppí rúm. Stundum kemur hann reyndar ekki út, stundum lokar hann bara hurðinni og bankar svo á hana þangað til maður kemur og setur hann aftur uppí rúm. En reyndar fór hann núna í kvöld að sofa án nokkurra vandræða þannig að vonandi verður það þannig áfram.

3 Responses to “Meira um nýja rúmið”

  1. Alda Says:

    Hehe… klár strákur.

  2. Alda Says:

    Er það pabbinn eða mamman sem er að dunda sér við útlitsbreytingar á kvöldin?
    Allavega, rosa fínt look. x alda

  3. Steina Says:

    Vá flott útlit á síðunni :)
    Já ég man að Ísold kom alltaf fram brosandi til að láta fara með sig aftur eins og þetta væri voða skemmtilegur leikur, núna læðupokast hún meira og stendur mjög skömmustuleg á ganginum því hún veit upp á hár að hún á ekki að vera að gera svona…