Snoooooze….
Daníel kom uppí rúm til mín í nótt eins og venjulega. Svo vekur útvarpsvekjaraklukkan okkur kl. 06:40 og ég snooza. Svo kveikir hún aftur á sér 10 mínútum seinna og þá teygir Daníel sig í klukkuna og snoozar! Ég var sem betur fer vakandi (annars hefði farið illa) og lít á hann, þá segir minn: Mamma og Daníel lúlla meira
Litli kallinn! Hvað ætli komi næst? Ætli hann verði búinn að hita fyrir mig kaffi þegar ég vakna á morgun?
október 11th, 2007 at 3:12 pm
ae hvad hann er mikill dulli :o)
október 16th, 2007 at 5:39 am
OMG hvað það er krúttlegt…
október 31st, 2007 at 12:44 pm
Svona á þetta að vera…