Archive for the ‘Almennt’ Category

Litla músin

þriðjudagur, júlí 15th, 2008

Ég set þetta hérna inn þar sem þetta er líka dagbókin okkar um Daníel. Efast um að þetta hafi mikið skemmtanagildi fyrir aðra en það er gaman að eiga þetta því maður er svooooo fljótur að gleyma.

Í morgun vaknaði Daníel fyrir allar aldir eða nánar til tekið kl.6 að staðartíma. Við erum með þá reglu hér á bæ að foreldrar fara ekki framúr rekkju fyrr en kl.7 í fyrsta lagi sama hvað Daníel raular og tautar. Hann er samt ekki vitlaus strákurinn og veit að það eru nokkrir hlutir sem munu koma okkur framúr eins og t.d. að segja “ég þarf að pissa”, eða “ég er svangur”. Við foreldrarnir eru hins vegar ekki heldur svo vitlaus og erum komin með hin ýmsu  mótsvör eins og “farðu bara sjálfur á koppinn” eða “það er ekki kominn matartími”. Þá kemur Daníel með krók á móti bragði eins og að biðja okkur um að tæma koppinn og við vitum að hann er hreinlætisfrík og ef við gerum það ekki þá mun hann gera það sjálfur!  Nú í morgun var hann hins vegar komin með nýja stratigíu og kallaði hátt og snjallt “Pabbi og mamma, það er mús hérna!” Við gátum að sjálfsögðu ekki hunsað þetta þar sem Daníel bendir oft réttilega á hluti eins og kónuglær eða annað. Þegar Eianr er loksins kominn framúr spyr hann hvar músin sé, hvar hann hafi séð hana hlaupa. Svarið frá Daníel lét ekki á sér standa “Hún borðaði ostinn sinn og fór síðan út að leika!”

Finnst þér góð lykt af prumpi?

sunnudagur, maí 18th, 2008

Daníel talar alveg endalaust (stundum of mikið!) og er með ýmsa góða frasa. Nokkrir af þeim hlutum sem hann segir:

  • “Finnst þér góð lykt af prumpi?”. Fyrst prumpar hann hressilega, svo spyr hann  og springur svo úr hlátri! Og þetta hættir aldrei að vera fyndið!
  • “Ertu glaður?” og “Ertu pirr?”. Þegar hann er að tékka á því hvort við séum í góðu skapi. Stundum spyr hann aftur og aftur hvort maður sé glaður og maður þarf stanslaust að svara “já, ég er glaður. Já, pabbi er mjög glaður. Mjög glaður”. Og pirraður/pirruð heitir bara pirr.
  • Talar um sjálfan sig sem “þessi strákur” eða “strákurinn”. Dæmi: “Er pabbi mjög ánægður með þessi strákur?” og bendir á sjálfan sig. Eða “strákurinn er duglegur að taka til”.
  • “Þetta er ekki gott bull”. Sagt þegar ég var eitthvað að bulla í honum.
  • “Óþekkar pönnukökur” eru pönnukökur sem voru bakaðar heima hjá Öglu og festust saman á pönnunni. “Óþekkur pottur” var pottur sem sauð upp úr.

Annars er hann búinn að vera mikið á róló og legestue meðan við bíðum eftir að hann fái leikskólapláss. Legestue er svona hús með dóti þar sem foreldrar geta komið með börnin sín til að leika og hitta önnur börn, og er mjög gott einmitt meðan maður bíður eftir leikskóla. Hann fer yfirleitt þangað tvisvar í viku og svo á róló alla daga. Hann er líka orðinn aðeins ófeimnari við að byrja að tala við hin börnin og er alltaf mjög glaður þegar þau svara honum og kemur og segir okkur “Stelpan sagði hæ við mig”. Hann hefur líka sterkar skoðanir á mat, melóna var “besti matur í heimi” en þegar við spurðum hvort hún væri betri en hamborgari var svarið samt “neeeeeiiiiii”. Vonandi fer hann svo bráðum að komast inn á leikskóla, þá fer hann örugglega að koma með nokkra góða danska frasa hérna heima :)

Bananalagið

þriðjudagur, febrúar 12th, 2008

Daníel er búinn að vera mjög duglegur að syngja síðustu vikur og mánuði. Vinsælustu lögin eru Gulur, rauður, grænn og blár, Fyrr var oft í koti kátt og Hafið bláa hafið. En í dag gerðist sá merki atburður að Daníel samdi sitt fyrsta lag. Hann var búinn að vera að tala um bananalagið, sem hvorki ég né Karen könnuðumst við, svo við spurðum hann hver hefði kennt honum það. Þá svaraði hann “bara ég”. Þannig að þetta er frumsamið lag. Við báðum hann svo að syngja það og bananalagið er nokkurnveginn svona:

Banana banana banana banana banana banana banana banana banana Hvar ert þú?

Banana Banana banana banana banana banana banana banana banana banana Lagið!

Daníel í Danaveldi

fimmtudagur, febrúar 7th, 2008

Nú erum við búin að vera hérna í Danmörku í rúmar 3 vikur og erum að aðlagast alveg ágætlega. Maður finnur samt að Daníel saknar þess að vera ekki í kringum krakka eins og hann var á leikskólanum og horfir löngunaraugum á krakkana leika sér á leikskólanum fyrir framan húsið okkar. Hjá leikskólunum eru rosalega flott leiktæki en lóðin er læst um helgar þannig að við getum ekki stolist þarna þegar leikskólinn er lokaður. Það er erfitt að úskýra fyrir Daníel að við megum ekki leika okkur þarna og að mamma sé ekki með lykil að leikskólanum. Hann stakk meira að segja uppá því um daginn að við færum í búðina að kaupa lykil að leikskólanum :(
Daníel er líka orðinn dáldið mikill mömmustrákur þar sem við erum tvö saman allan daginn. Hann er líka orðinn rosalega duglegur í koppamálunum og ég slapp við að flytja með mér bleyjur milli landa. Hann er meira að segja orðinn svo duglegur að hann er farinn að fara sjálfur á koppinn og kallar bara á okkur þegar hann er búinn, meira að segja nr.2!
Ég held að í heildina litið sé þetta eins gott og á verður kosið. Nú er bara spurning hvenær hann kemst að í leikskólanum.

Ég á!

laugardagur, nóvember 24th, 2007

Ef mér finnst það flott, þá á ég það

Ef ég held á því, þá á ég það

Ef ég næ því frá þér, þá á ég það

Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það

Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt

Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana

EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það

Þetta er mjög lýsandi fyrir Daníel þessa dagana þegar hann á samskipti við önnur börn. Hann getur á engann hátt komist hjá árekstrum af þessu tagi, meira að segja þegar hann er gestur hjá öðrum! Mér var hins vegar sagt í foreldraviðtalinu að vera ekkert að hafa áhyggjur að hann hann myndi verða að einhverjum eigingjörnum nýskupúka ( eins og ég greinileg ímyndaði mér), þetta er bara aldurinn. Ég er nú ekkert að stressa mig á þessu heldur á ég meira í erfiðleikum með að skella ekki uppúr við svona aðstæður því að horfa á alvarlega svipinn á honum þegar hann er að rífast um eitthvað dót sem hann hefur ekki snert í marga mánuði en sem er núna greinilega miðpunktur alheimsins er meira en lítið spaugilegt!

Snoooooze….

mánudagur, október 8th, 2007

Daníel kom uppí rúm til mín í nótt eins og venjulega. Svo vekur útvarpsvekjaraklukkan okkur kl. 06:40 og ég snooza. Svo kveikir hún aftur á sér 10 mínútum seinna og þá teygir Daníel sig í klukkuna og snoozar! Ég var sem betur fer vakandi (annars hefði farið illa) og lít á hann, þá segir minn: Mamma og Daníel lúlla meira :-D Litli kallinn! Hvað ætli komi næst? Ætli hann verði búinn að hita fyrir mig kaffi þegar ég vakna á morgun?

Nokkur video

fimmtudagur, september 20th, 2007

Ég var að setja upp smá síðu með video-um af Daníel. Þetta er mest frá fyrsta árinu en kannski setjum við eitthvað meira inn fljótlega. Það er hægt að finna síðuna með því að smella á Video í valmyndinn hérna til hægri.

Leikskóli og fleira

föstudagur, ágúst 24th, 2007

Við erum nú að mestu leyti hætt að skrifa inná þessa síðu en ákvað að henda samt inn nokkrum punktum. Daníel byrjaði í aðlögun á leikskólanum Hamraborg í síðust viku. Hann náði 3 dögum í aðlögun áður en við fórum út og fer síðan í svona 2-3 í viðbót eftir að hann og Karen koma heim. Fyrstu 3 dagarnir voru svona:

  1. Komum bara í heimsókn í klukkutíma. Töluðum við Nönnu aðstoðarleikskólastjóra sem var mjög fín. Daníel var síðan í svona hálftíma úti að leika með krökkunum og ég með, hann vildi helst vera lengur.
  2. Komum kl. 8:30 og vorum í morgunmat með krökkunum. Daníel fékk hafragraut með smá Cheerios útí og var bara svona ágætlega sáttur. Svo var smá leikstund inni og svo rétt eftir 9 fór hann út með krökkunum. Þá skrapp ég í burtu og kom svo aftur um kl. 10:30. Þá var hann ennþá úti og bara hæstánægður.
  3. Komum aftur kl. 8:30 í morgunmat. Daníel mjög ósáttur með morgunmatinn, vildi alls ekki borða og neitaði að sitja meðan hinir krakkarnir voru að borða. Mikill grátur og læti og fóstrurnar sögðu mér að fara bara með hann strax í leikherbergið. Eftir morgunmatinn fór ég svo aftur og kom svo til baka kl. 12, þá var Daníel búinn að borða hádegismat með krökkunum, borðaði vel og var í fínu skapi.

Á degi 4 ætti hann svo að vera framyfir hvíldartímann og á degi 5 að vera fram yfir síðdegishressinguna. Við sjáum til hvernig gengur þegar Karen kemur heim, hann þarf sennilega a.m.k. að taka dag 3 aftur þar sem hann verður búinn að vera í burtu í 2 vikur.

Aðrir punktar:

  • Allar hreyfingar eru orðnar miklu öruggari. Getur t.d. labbað upp stiga án þess að halda sér í (ef tröppurnar eru ekki mjög háar).
  • Talið er alltaf að aukast. Getur sagt setningar eins og ‘Ekki mamma tala Hönnu’. Vantar soldið uppá að hann fara að nota svona smáorð og samtengingar rétt.
  • Einn vinsælasti leikurinn er að láta mömmu og pabba kúra uppí rúmi og gera síðan krókódílaárás. Það gengur nokkurnveginn svona fyrir sig:
    D: Mamma kúa. Mamma Pabbi kúa!
    M & P: Já, við erum að kúra.
    D: [stekkur oná okkur] KOKKALI!!!!! (Krókódíll)
    M & P: ónei, enn ein krókódílaárás…
    D: KOKKKALIIIII!!!!!!

Pissa í kopp

mánudagur, júlí 23rd, 2007

Stórtíðindi gerðust núna fyrir nokkrum dögum! Daníel pissaði í kopp í fyrsta sinn. Hann var búinn að vera að sýna koppnum áhuga, og var að tala um hann og var eitthvað hlaupandi um bleyjulaus. Síðan föttuðum við bara um kvöldið eftir að hann var farinn að sofa að það var komið piss í koppinn. Núna talar hann oft um að kúka í kopp, en reyndar gerir hann það yfirleitt þegar hann er búinn að kúka sem er frekar gagnslaust. En núna förum við að reyna að koma koppnum meira að.

Talið er líka alltaf að aukast. Við sáum ótrúlegan mun á honum eftir að hann var með okkur í 2 vikur í Búlgaríu. Þá var hann með okkur allan daginn og við alltaf að tala við hann og það hafði mikil áhrif. Nokkrar setningar sem eru vinsælar þessa dagana:

Meiri róló! (endurtekið alla leiðina heim af róló…)

Ekki heim! (Skotið inn á milli ‘meiri róló′)

Ekki koddu! (Þegar hann vill ekki að við eltum hann )

Ekki pabbi sitja! (Þegar ég sit í tölvunni eða horfandi á sjónvarpið)

Amma mín (við öll tækifæri, sérstaklega þegar á að syngja ‘Afi minn og amma mín’)

Pabbi gejaujju (Pabbi gleraugu)

Ekki Dajíe gejaujju (Ekki Daníel gleraugu. Daníel er mjög heillaður af gleraugum og hver er með þau og hver ekki)
Annars var fyrsti dagurinn hjá nýju barnapíunni í dag. Gekk bara nokkuð vel, Daníel reyndar fór ekkert að sofa í hádeginu og var loksins að sofna núna um 5 leytið, en það gengur vonandi betur í framhaldinu. Síðan kemst Daníel vonandi inná leikskóla í ágúst, hann kemst a.m.k í seinasta lagi í september inn.

Nýjar myndir

þriðjudagur, júní 12th, 2007

Ansi langt síðan eitthvað hefur komið hér inn. Allt gott að frétta. Daníel verður 2 ára á morgun, það verður smá fjölskylduveisla um kvöldið með langömmu hans sem á afmæli á sama degi. Svo verður vinunum boðið á laugardaginn. Það er soldið búið að vera kvartað yfir myndaleysi hérna þannig að ég skellti inn öllum myndunum sem voru á myndavélinni, 191 stk. Þessar myndir eru frá því í febrúar og framí júní.

Nýjar myndir

[13.12.2007: Ok, er í vinnunni núna og sé að þetta albúm hefur ekki komið eðlilega inn, það kemur þá inn seinna í dag :)]

[13.12.2007 23:50 - Nú er þetta komið inn]