Archive for the ‘Danmörk’ Category

3 ára afmæli!

föstudagur, júní 13th, 2008

Daníel á afmæli í dag og er orðinn 3 ára! Því miður getum við víst ekki haldið alvöru barnaafmæli með fullt af börnum en við ákváðum bara að reyna að hafa sem skemmtilegastan dag í dag og fá svo Öglu og Ragga í afmæliskaffi á morgun. Þegar Daníel kom fram í morgun vorum við búin að raða upp pökkunum hans og fullt af blöðrum á sófanum. Hann fór strax að taka upp pakka og var mjög ánægður með gjafirnar sínar, sérstaklega var IKEA lestarsettið mjög spennandi. Síðan borðuðum við saman morgunmat í rólegheitunum og fengum smá kökur með. Eftir það fórum við í heimsókn á leikskólann hans Daníels sem hann byrjar á í júlí. Leikskólinn er beint á móti húsinu okkar og okkur leist öllum vel á hann, Daníel vildi helst bara vera þar áfram að leika. Síðan fór ég í skólann en Karen og Daníel fóru að baka og Daníel svo að leggja sig í hádeginu.
Þegar ég var búinn í skólanum um fjögur fór ég með lestinni og hitti Karen og Daníel í tívolí. Þar fékk Daníel að fara í bátana, hringekju, bíla og hoppa á stóru hoppudýnunni. Mikið fjör. Síðan fengum við okkur hamborgara á Burger King og komum okkur heim. Þar háttaði Daníel og svo horfðum við öll saman á Mjallhvíti og dvergana sjö, sem Daníel fanns SVAKALEGA fyndin! Fyrir háttinn lásum við svo fyrir hann eina af nýju bókunum sem hann fékk í afmælisgjöf. Daníel var mjög ánægður eftir daginn og fannst þetta bara fínasti afmælisdagur!
Við erum búin að setja inn nýjar myndir frá maí og júní, meðal annars deginum í dag, þær eru hérna. Annars erum við hætt að setja myndir inná þessa síðu, allar nýjar myndir koma núna inná http://einaregilsson.com/birketinget.

Finnst þér góð lykt af prumpi?

sunnudagur, maí 18th, 2008

Daníel talar alveg endalaust (stundum of mikið!) og er með ýmsa góða frasa. Nokkrir af þeim hlutum sem hann segir:

  • “Finnst þér góð lykt af prumpi?”. Fyrst prumpar hann hressilega, svo spyr hann  og springur svo úr hlátri! Og þetta hættir aldrei að vera fyndið!
  • “Ertu glaður?” og “Ertu pirr?”. Þegar hann er að tékka á því hvort við séum í góðu skapi. Stundum spyr hann aftur og aftur hvort maður sé glaður og maður þarf stanslaust að svara “já, ég er glaður. Já, pabbi er mjög glaður. Mjög glaður”. Og pirraður/pirruð heitir bara pirr.
  • Talar um sjálfan sig sem “þessi strákur” eða “strákurinn”. Dæmi: “Er pabbi mjög ánægður með þessi strákur?” og bendir á sjálfan sig. Eða “strákurinn er duglegur að taka til”.
  • “Þetta er ekki gott bull”. Sagt þegar ég var eitthvað að bulla í honum.
  • “Óþekkar pönnukökur” eru pönnukökur sem voru bakaðar heima hjá Öglu og festust saman á pönnunni. “Óþekkur pottur” var pottur sem sauð upp úr.

Annars er hann búinn að vera mikið á róló og legestue meðan við bíðum eftir að hann fái leikskólapláss. Legestue er svona hús með dóti þar sem foreldrar geta komið með börnin sín til að leika og hitta önnur börn, og er mjög gott einmitt meðan maður bíður eftir leikskóla. Hann fer yfirleitt þangað tvisvar í viku og svo á róló alla daga. Hann er líka orðinn aðeins ófeimnari við að byrja að tala við hin börnin og er alltaf mjög glaður þegar þau svara honum og kemur og segir okkur “Stelpan sagði hæ við mig”. Hann hefur líka sterkar skoðanir á mat, melóna var “besti matur í heimi” en þegar við spurðum hvort hún væri betri en hamborgari var svarið samt “neeeeeiiiiii”. Vonandi fer hann svo bráðum að komast inn á leikskóla, þá fer hann örugglega að koma með nokkra góða danska frasa hérna heima :)