Archive for the ‘Leikskóli’ Category

Leikskólastrákurinn

þriðjudagur, júlí 8th, 2008

Loksins er Daníel byrjaður í leikskólanum Grøftekanten eða Grafarbakkanum eins og við foreldranir höfum íslenskað það. Nú er Daníel búinn að vera í viku á leikskólanum og við höfum ákveðið að hafa aðlögunina hæga þar sem við höfum bæði tíma í þetta og líka að hann skilur ekki málið. Hingað til hefur allt gengið rosalega vel og er hann núna frá 9-13 á leikskólanum og planið er að lengja þetta uppí 9-15 fyrir vikulokin. Leikskólinn er mjög fínn með góðum leikgarði og starfsfólkið er líka mjög indælt og vill allt fyrir okkur gera. Enn sem komið er eru kveðjustundirnar erfiðar en þegar við komum að sækja hann er hann á fullu í leik með hinum krökkunum og segir okkur síðan frá leikskóladvöl dagsins fram á kvöld. Hann hefur eignast tvo vini sem hann er mest með þó svo að þeir séu ekki deild með honum. Þessi nýju vinir hans heita Sebastian og Jakob og þegar við kíkjum á leikskólalóðina þá eru þeir ósjaldan að eltast við hvorn annan eða moka saman.

Við Einar eru himinlifandi yfir leikskóladvölinni og sjáum mikinn mun á Daníel. Ég get rétt ímyndað mér að það sé ekki gaman að hanga alltaf bara með mömmu á róló alla daga og þetta er einmitt það sem hann þurfti. Núna nýtum við líka mun betur þann tíma sem við höfum saman enda byrjaði Einar í sumarfríi sama dag og Daníel byrjaði á leikskólanum. Við vonum bara að þetta haldi áfram að ganga svona vel og hann verði kominn í fulla leikskóladvöl í næstu viku.

3 ára afmæli!

föstudagur, júní 13th, 2008

Daníel á afmæli í dag og er orðinn 3 ára! Því miður getum við víst ekki haldið alvöru barnaafmæli með fullt af börnum en við ákváðum bara að reyna að hafa sem skemmtilegastan dag í dag og fá svo Öglu og Ragga í afmæliskaffi á morgun. Þegar Daníel kom fram í morgun vorum við búin að raða upp pökkunum hans og fullt af blöðrum á sófanum. Hann fór strax að taka upp pakka og var mjög ánægður með gjafirnar sínar, sérstaklega var IKEA lestarsettið mjög spennandi. Síðan borðuðum við saman morgunmat í rólegheitunum og fengum smá kökur með. Eftir það fórum við í heimsókn á leikskólann hans Daníels sem hann byrjar á í júlí. Leikskólinn er beint á móti húsinu okkar og okkur leist öllum vel á hann, Daníel vildi helst bara vera þar áfram að leika. Síðan fór ég í skólann en Karen og Daníel fóru að baka og Daníel svo að leggja sig í hádeginu.
Þegar ég var búinn í skólanum um fjögur fór ég með lestinni og hitti Karen og Daníel í tívolí. Þar fékk Daníel að fara í bátana, hringekju, bíla og hoppa á stóru hoppudýnunni. Mikið fjör. Síðan fengum við okkur hamborgara á Burger King og komum okkur heim. Þar háttaði Daníel og svo horfðum við öll saman á Mjallhvíti og dvergana sjö, sem Daníel fanns SVAKALEGA fyndin! Fyrir háttinn lásum við svo fyrir hann eina af nýju bókunum sem hann fékk í afmælisgjöf. Daníel var mjög ánægður eftir daginn og fannst þetta bara fínasti afmælisdagur!
Við erum búin að setja inn nýjar myndir frá maí og júní, meðal annars deginum í dag, þær eru hérna. Annars erum við hætt að setja myndir inná þessa síðu, allar nýjar myndir koma núna inná http://einaregilsson.com/birketinget.

Leikskóli og fleira

föstudagur, ágúst 24th, 2007

Við erum nú að mestu leyti hætt að skrifa inná þessa síðu en ákvað að henda samt inn nokkrum punktum. Daníel byrjaði í aðlögun á leikskólanum Hamraborg í síðust viku. Hann náði 3 dögum í aðlögun áður en við fórum út og fer síðan í svona 2-3 í viðbót eftir að hann og Karen koma heim. Fyrstu 3 dagarnir voru svona:

  1. Komum bara í heimsókn í klukkutíma. Töluðum við Nönnu aðstoðarleikskólastjóra sem var mjög fín. Daníel var síðan í svona hálftíma úti að leika með krökkunum og ég með, hann vildi helst vera lengur.
  2. Komum kl. 8:30 og vorum í morgunmat með krökkunum. Daníel fékk hafragraut með smá Cheerios útí og var bara svona ágætlega sáttur. Svo var smá leikstund inni og svo rétt eftir 9 fór hann út með krökkunum. Þá skrapp ég í burtu og kom svo aftur um kl. 10:30. Þá var hann ennþá úti og bara hæstánægður.
  3. Komum aftur kl. 8:30 í morgunmat. Daníel mjög ósáttur með morgunmatinn, vildi alls ekki borða og neitaði að sitja meðan hinir krakkarnir voru að borða. Mikill grátur og læti og fóstrurnar sögðu mér að fara bara með hann strax í leikherbergið. Eftir morgunmatinn fór ég svo aftur og kom svo til baka kl. 12, þá var Daníel búinn að borða hádegismat með krökkunum, borðaði vel og var í fínu skapi.

Á degi 4 ætti hann svo að vera framyfir hvíldartímann og á degi 5 að vera fram yfir síðdegishressinguna. Við sjáum til hvernig gengur þegar Karen kemur heim, hann þarf sennilega a.m.k. að taka dag 3 aftur þar sem hann verður búinn að vera í burtu í 2 vikur.

Aðrir punktar:

  • Allar hreyfingar eru orðnar miklu öruggari. Getur t.d. labbað upp stiga án þess að halda sér í (ef tröppurnar eru ekki mjög háar).
  • Talið er alltaf að aukast. Getur sagt setningar eins og ‘Ekki mamma tala Hönnu’. Vantar soldið uppá að hann fara að nota svona smáorð og samtengingar rétt.
  • Einn vinsælasti leikurinn er að láta mömmu og pabba kúra uppí rúmi og gera síðan krókódílaárás. Það gengur nokkurnveginn svona fyrir sig:
    D: Mamma kúa. Mamma Pabbi kúa!
    M & P: Já, við erum að kúra.
    D: [stekkur oná okkur] KOKKALI!!!!! (Krókódíll)
    M & P: ónei, enn ein krókódílaárás…
    D: KOKKKALIIIII!!!!!!