Archive for the ‘Þroski’ Category

Bananalagið

þriðjudagur, febrúar 12th, 2008

Daníel er búinn að vera mjög duglegur að syngja síðustu vikur og mánuði. Vinsælustu lögin eru Gulur, rauður, grænn og blár, Fyrr var oft í koti kátt og Hafið bláa hafið. En í dag gerðist sá merki atburður að Daníel samdi sitt fyrsta lag. Hann var búinn að vera að tala um bananalagið, sem hvorki ég né Karen könnuðumst við, svo við spurðum hann hver hefði kennt honum það. Þá svaraði hann “bara ég”. Þannig að þetta er frumsamið lag. Við báðum hann svo að syngja það og bananalagið er nokkurnveginn svona:

Banana banana banana banana banana banana banana banana banana Hvar ert þú?

Banana Banana banana banana banana banana banana banana banana banana Lagið!

Snoooooze….

mánudagur, október 8th, 2007

Daníel kom uppí rúm til mín í nótt eins og venjulega. Svo vekur útvarpsvekjaraklukkan okkur kl. 06:40 og ég snooza. Svo kveikir hún aftur á sér 10 mínútum seinna og þá teygir Daníel sig í klukkuna og snoozar! Ég var sem betur fer vakandi (annars hefði farið illa) og lít á hann, þá segir minn: Mamma og Daníel lúlla meira :-D Litli kallinn! Hvað ætli komi næst? Ætli hann verði búinn að hita fyrir mig kaffi þegar ég vakna á morgun?

Leikskóli og fleira

föstudagur, ágúst 24th, 2007

Við erum nú að mestu leyti hætt að skrifa inná þessa síðu en ákvað að henda samt inn nokkrum punktum. Daníel byrjaði í aðlögun á leikskólanum Hamraborg í síðust viku. Hann náði 3 dögum í aðlögun áður en við fórum út og fer síðan í svona 2-3 í viðbót eftir að hann og Karen koma heim. Fyrstu 3 dagarnir voru svona:

  1. Komum bara í heimsókn í klukkutíma. Töluðum við Nönnu aðstoðarleikskólastjóra sem var mjög fín. Daníel var síðan í svona hálftíma úti að leika með krökkunum og ég með, hann vildi helst vera lengur.
  2. Komum kl. 8:30 og vorum í morgunmat með krökkunum. Daníel fékk hafragraut með smá Cheerios útí og var bara svona ágætlega sáttur. Svo var smá leikstund inni og svo rétt eftir 9 fór hann út með krökkunum. Þá skrapp ég í burtu og kom svo aftur um kl. 10:30. Þá var hann ennþá úti og bara hæstánægður.
  3. Komum aftur kl. 8:30 í morgunmat. Daníel mjög ósáttur með morgunmatinn, vildi alls ekki borða og neitaði að sitja meðan hinir krakkarnir voru að borða. Mikill grátur og læti og fóstrurnar sögðu mér að fara bara með hann strax í leikherbergið. Eftir morgunmatinn fór ég svo aftur og kom svo til baka kl. 12, þá var Daníel búinn að borða hádegismat með krökkunum, borðaði vel og var í fínu skapi.

Á degi 4 ætti hann svo að vera framyfir hvíldartímann og á degi 5 að vera fram yfir síðdegishressinguna. Við sjáum til hvernig gengur þegar Karen kemur heim, hann þarf sennilega a.m.k. að taka dag 3 aftur þar sem hann verður búinn að vera í burtu í 2 vikur.

Aðrir punktar:

  • Allar hreyfingar eru orðnar miklu öruggari. Getur t.d. labbað upp stiga án þess að halda sér í (ef tröppurnar eru ekki mjög háar).
  • Talið er alltaf að aukast. Getur sagt setningar eins og ‘Ekki mamma tala Hönnu’. Vantar soldið uppá að hann fara að nota svona smáorð og samtengingar rétt.
  • Einn vinsælasti leikurinn er að láta mömmu og pabba kúra uppí rúmi og gera síðan krókódílaárás. Það gengur nokkurnveginn svona fyrir sig:
    D: Mamma kúa. Mamma Pabbi kúa!
    M & P: Já, við erum að kúra.
    D: [stekkur oná okkur] KOKKALI!!!!! (Krókódíll)
    M & P: ónei, enn ein krókódílaárás…
    D: KOKKKALIIIII!!!!!!

Málgleði

fimmtudagur, júní 21st, 2007

Hann Daníel er alveg ótrúlegur og þroskinn þeysist áfram. Daníel er farin að tengja mikið orðin saman sem hann kann og út koma oft ótrúlega fyndnar meiningar.
Eins og sumir vita þá á ég það til að vera dáldið stjórnsöm og meira að segja afskiptasöm á köflum myndu sumir segja. Hann Daníel hefur kannski ekki erft frá mér neitt útlitstengt en hann hefur svo sannarlega marga skapgerðarþætti sem koma beint frá mér! Hann er farinn að vera dáldið frekur og lætur ganga mikið á eftir sér. Auk þess er hann farinn að skipa fólki mikið fyrir. Hann á það til að fara út á svalir ef krakkar eru að leika sér í garðinum og kalla (öskra) yfir þá alskyns skipanir sem hvorki þau né við skiljum. Það eina sem við skiljum er að hann bannar þeim að gera þetta eða hitt og vill oft á tíðum að þau hætti einhverju! Svo í gær þá tók hann pabba sinn algjörlega fyrir. Þetta var semsagt um eftirmiðdaginn og það var opið útá svalir þar sem við erum með borð og stóla.

D: pabbi út
E: nei ekki núna Daníel
D: út núna!
E: ok
D: pabbi sitja
E: (gáttaður sest)
D: pabbi ekki sitja!
E: (yfir sig hrifinn af setningunum) ok og stendur upp og fer inn
D: NEI! Pabbi út!

Þarna er ég farin að veltast úr hlátri inní eldhúsi. Þetta er alveg ótrúlegt að um leið og hann er farinn að geta tjáð sig eitthvað þá byrjar hann á að skipa okkur fyrir hægri vinstri! Greinilega sonur minn!
Ég er voðalega hissa á þessu skyndilega tali því þetta gerðist næstum því allt á bara 1-2 dögum að hann fattaði að tengja þetta saman. Hann kann fleiri fleiri orð en þarna loksins fattaði hann hvað hann ætti að gera, alveg eins og þegar maður lærir að lesa… þetta bara allt í einu smellur!
Í morgun var hann síðan að tjá sig um það að hann vildi ekki fara til dagmömmunnar heldur vera heima að kúra. Getur einhver ímyndað sér eitthvað betra en að vera heima með barninu sínu og kúra bara undir teppi og hafa það huggó? Ekki ég allavegana þannig að ég þurfti að taka á öllu mínu til að neita honum um þetta og skella honum beint í fötin. En núna um leið og Daníel er byrjaður að tala þá er hann farinn að gabba mig enn meira. Áðan vorum við að fara í bað. Þá segir minn allt í einu “Daníel kúka”. Ég auðvitað hendist af stað og kippi honum blautum uppúr og vonast eftir fyrstu koppaferðinni. En allt kemur fyrir ekki og Daníel viðurkennir að hann þurfti ekki að kúka! Skamm skamm Daníel fyrir að gabba mömmu svona þannig að uppskeran var aðeins rennandi blautt gólf.

Nýtt rúm!

fimmtudagur, mars 1st, 2007

Nýja rúmiðVið fórum í IKEA í gær og keyptum nýtt rúm handa Daníel. Rúmið er svaka flott, 80×200 á stærð, en það er hægt að stytta það með því að láta báða endana upp (eins og sést á myndinni) og þá er það 80×152. Daníel var rosaspenntur fyrir þessu þegar við vorum að setja það saman og fór svo að klifra uppí það á fullu. Eina áhyggjuefnið er að hann var mjög spenntur fyrir því að standa í því, og láta sig hrynja niður og munaði minnstu að hann dytti beint niður á gólf. Við settum nýja rúmið inn til hans en létum hann samt sofa í gamla í nótt því hann var ekki alveg að vilja leggjast niður í þessu nýja og við vildum líka leyfa honum að venjast því bara í rólegheitum.

Annars er Daníel farinn að vakna soldið á nóttunni aftur núna og fá að koma uppí til okkar restina af nóttinni. Vaknaði t.d. kl. 4 í nótt og neitaði að fara aftur að sofa í sínu rúmi, vildi bara koma yfir í okkar rúm. Verður spennandi að sjá hvað gerist þegar hann kemst sjálfur úr rúminu sínu …

Ný orð síðustu daga: Eyra, stóll, borð, peysa (í gær, fyrsta skipti sem hann segir S almennilega). Svo fyrir nokkrum vikum komu fyrstu orðasamböndin: Dudda datt, og Mamma mín.

Tal

föstudagur, febrúar 16th, 2007

Daníel er núna orðinn meira en eins og hálfs árs og er alltaf að stækka. Síðasta mánuðinn er hann byrjaður að tala á fullu. Þangað til fyrir svona 3 vikum hafði hann haft voða lítinn áhuga á að tala, vildi ekkert sérstaklega herma eftir manni en svo er eins og hann hafi allt í einu bara fattað þetta! Hann er farinn að herma eftir okkur á fullu og biðja um ýmsa hluti með nafni. Nokkur af þeim orðum sem eru komin

  • eppi => epli
  • geii => skeið
  • baa => banani (ok, hljómar kannski ekki alveg eins og banani, en hann segir þetta alltaf þegar hann vill banana).
  • bógga => bók
  • bíí => bíll (og gerir líka hljóðið, brrrrrrr)
  • voffi
  • botti => bolti
  • amma
  • afi

og svo að sjálfsögðu orðið sem er notað við öll tækifæri: Nei! Og hann er auðvitað löngu farinn að segja pabbi og mamma :)

Svo fékk hann dvd disk með Stubbunum um daginn sem er mjög vinsæll. Ég er að sjálfsögðu kominn með stubbalagið á heilann og veit hvað þeir allir heita, mikið fjör.

Ég veit að það er ansi langt síðan við höfum sett myndir hingað inn og við skulum reyna að skella einhverju inn um helgina

Öskur og tunga!

laugardagur, apríl 29th, 2006

Margt nýtt að gerast hjá peyjanum eins og við má búast. Núna, eftir að hafa nokkrum sinnum bitið hana til blóðs, er Daníel búinn að uppgötva í sér tunguna! Jebb, það er eitthvað þarna fyrir neðan nefið sem hann sér varla en er mjög næmt og skemmtilegt. Hann er semsagt búinn að eyða góðum tíma í að ulla, koma við hana og toga í þennan merkilega hlut undanfarið. Annað skemmtilegt er að Daníel er farinn að nota röddina sína óspart og hún er ekki lengur svo lítil og sæt. Af engri sérstakri ástæðu byrjar hann að öskra: DADADADA!!!!!!! JAAAAJAAAAAJAAAJAAAAA! Og þetta er ekkert smá hátt. Hann lætur líka heyra í sér ef hann er búnn með brauðið eða öll leikföngin eru dottin á gólfið. Ég bíð spennt eftir að flyta í fjölbýlishúsið þar sem nágrannarnir fá að njóta látanna með okkur :)

Daníel fékk nýtt leikfang í gær frá Ársæli afa. Það var hvorki meira né minna en stór slökkviliðs-sparkbíll! Þetta vakti mikla gleði og forvitni hjá litla mannin þó hann sé ennþá aðeins og lítill til að sitja á honum einn og óstuddur. Það sem er líka mjöööööög vinsælt hjá Daníel er svona þræða víra-kubba dót eins og er oft á læknastofum. Ég keypti þetta þegar ég var í DK og það er búið að skapa mikla lukku. Annars er Daníel ekkert sérstaklega vandlátur á leikföng.Til að mynda er svitalyktaeyðirinn minn ekkert minna spennandi en þessir svaka þroskaleikföng. Svo þegar hann er komin með leið á honum þá skellir maður bara litríkri hárteygju á hann og þá heldur gleðin áfram. Hver man svo ekki eftir Nivea-dollunni vinsælu? Og svo er það auðvitað greiðan, meikdollan mín og þvottapokinn…. er einhver að sjá munstur í þessu? Já þetta eru allt hlutir úr baðherberginu þar sem að Daníel er oft sprikklandi eins og lítill fiskur á skiptiborðinu og við verðum að hafa ofan af fyrir honum til að ná að skipta um bleyju eða smeygja honum í föt!

Göngutæknin er líka öll að koma til en það fyndnasta er þegar hann vill setjast niður þá ,,,,,,,,,þ.æ(Daníel að skrifa)nnnnnnnnnnnnnnn já eins og ég sagði þá er fyndnast þegar hann vill setjast niður þá sperrir hann bossann útí loftið og POMMP lætur sig detta beint niður! Þetta finnst mér mjög sniðug tækni. Svo er hann farinn að fara á mill hluta t.d. stóla bara alveg eins og Tarzan!

Við erum svo að fara að fá nýju íbúðin í Svarthömrunum afhenta á sunnudaginn í næstu viku. Reikna með að vera síma og netsambandslaus allavegana viku eftir það þannig að ég ætla að reyna að skella inn myndum núna bráðulega áður en við flytjum. Þá fær Daníel líka sér herbergi…. spennó!

Duglegur Daníel!

laugardagur, mars 18th, 2006

Fór með Daníel til læknis útaf útbrotum sem hann var með á kroppnum og læknirinn sagði að þetta væri bara exem eða m.ö.o. viðkvæm húð. Fékk stera-krem fyrir kroppinn og svo annað krem fyrir bossann á honum sem reyndist ekki vera til neinstaðar á landinu nema á Raufarhöfn og Höfn! Hann er strax orðinn betri og um leið miklu hressari og skapbetri ;)

Þessa dagana gerum við ekki annað en að eltast við litla gaurinn útum alla íbúð þar sem hann er allt í einu farinn að “þora” að flakka um einn. Fyrst þegar við settum hann á góflið að skríða þá vildi hann bara koma til okkar og oft fylgdi mikið táraflóð með En um leið og Daníel fór að skríða svona mikið eignuðumst við nýja skúringavél! Þannig er að hann slefar svo svakalega og svo þurkar hann það upp og gólfið um leið með maganum þegar hann skríður. Það er best að fara að taka sig á í þrifunum því fötin hans hafa því miður borið merki um slæma húsmóðurshæfileika mína.

Daníel er líka búinn að læra að toga sig upp við stól, borð, sófann og í rauninni hvað sem er. Það er líka mjög gaman að standa núna og dúa og dilla rassinum og svo auðvitað reynir hann að fikra sig meðfram því sem hann stendur við en með misjöfnum árangri. En Daníel er duglegur, þegar hann dettur þá reynir hann bara um leið aftur! :) En um leið og þessi aukni hreyfanleiki kom til sögunnar þá hafa slysagildrurnar aukist um 300% hérna á heimilinu. Til þessa hefur hann næstum því togað heila þvottagrind ofan á sig og rafmagns gítarinn, var á góðri leið með að stinga puttunum í innstungu og hefur hrunið einu sinni fram úr rúminu. Þannig að helst í gær ættum við að vera búin að kaupa hlífar á öll horn og öryggislok á allar innstungur og fjöltengi og það verður gert strax á morgun. Annars erum við búin að vera dádlið upptekin í fasteignaleit undanfarið og það gæti verið að við séum komin með eina í sigtið en meira um það seinna 8).

Aðskilnaðarkvíði

miðvikudagur, febrúar 22nd, 2006

Núna þegar Karen er byrjuð að vinna þá fer hún labbandi með Daníel á morgnana til dagmömmunnar og tekur síðan strætó í vinnuna, en ég mæti 8 í vinnuna á bílnum og sæki Daníel kl. 4 og svo Karen einhverntímann eftir það. Þegar ég kom í dag að sækja Daníel þá sat hann í litlu uppblásnu sundlauginni sem hann situr oft í hjá dagmömmunni og lék sér, hæstánægður. En þegar hann sá mig þá kom bara þvílík skeifa og hann fór að hágráta! Það lagaðist þegar ég tók hann upp en svo þegar ég var búinn að klæða hann í og lét dagmömmuna fá hann eitt augnablik meðan ég klæddi mig í skóna þá fór hann aftur að hágráta! Hann gerir þetta líka heima, ef maður yfirgefur herbergið sem hann er í þá er hann sannfærður um að maður sé að yfirgefa hann að eilífu og verður mjög ósáttur. Þetta er víst eðlilegt á þessum aldri og gengur yfir á endanum en á meðan verðum við víst bara að passa að fara ekki of langt frá honum ;) .

Byrjaður hjá dagmömmu

fimmtudagur, janúar 19th, 2006

Við Daníel byrjuðum á mánudaginn hjá Ingu dagmömmu. Við byrjuðum bara rólega og erum bara búin að vera ca. 2 tíma á dag og ég hef skroppið aðeins frá til að leyfa þeim að vera einum. Í dag fór ég svo frá í tæpa 2 tíma og Daníel var bara alsæll allann tímann, ég er greinilega ekki eins ómissandi eins og ég vil halda! Þannig að á morgun er planið að fara hálf 9 og vera fram á hádegi. Svo vonandi verðu hann farinn að geta verið allann daginn í næstu viku kannski og þá ætla ég að fara í atvinnuleit.

Annars vorum við Sandra í dag að láta okkur dreyma um að geta farið út í göngutúr með vagninnn en það er ekki glæta meðan að snjóruðningstækni Reykjavíkurborgar er ekki betri en þetta. Hérna kemur dæmi: maður sér vel rudda gangsétt og fylgir henni en síðan af einhverjum ástæðum hefur snjóruðningsmaðurinn ákveðið að hætta að skafa snjóinn 3-4 metra og byrja svo aftur. Annað dæmi er að þegar komið er að götu eða gatnamótum þá er búið að ryðja snjónum af götunni uppá gangstéttina þannig að maður þarf að klífa yfir skaflana til að komast yfir. Getur einhver ímyndað sér hvernig það er að reyna að reyna að komast leiðar sinnar með barnavagn í þessari færð eða hvað þá með gamla fólkið??? Sem betur fer var Sandra með mér og saman HÉLDUM VIÐ Á VAGNINUM yfir verstu kaflana. Fáránlegt, verð fegin þegar snjórinn verður farinn.

Það eru endalausar framfarir hjá Daníel. Hann er farinn að sitja í lengri tíma að leika sér óstuddur og hann getur staðið með ef hann nær taki á einhverju. Svo er Daníel byrjaður að borða brauð með smjöri og kæfu í litlum bitum og fisk með kartöflum og gulrótum og ofan á er hann byrjaður að borða kjúkling og lamb. Næsta skref í matarmálunum er að prófa þorsk og brún hrísgrjón.